Klasi hefur frá árinu 2005 leitt vinnu við þróun á nýjum miðbæ í Garðabæ í samstarfi við bæjaryfirvöld, í kjölfar ákvörðunar Garðabæjar um að efla og endurskipuleggja miðbæinn. Fyrsta áfanga þessa verkefnis lauk í júní 2008 með opnun verslunarkjarnans við Litlatún 3, á mótum Hafnarfjarðarvegar og Vífilsstaðavegar, en hann hefur reynst afar vinsæll og er vel sóttur af Garðbæingum og nærsveitungum.
Í kjölfar efnahagsáfallsins sem reið yfir árið 2008 og voru upphaflegar skipulagshugmyndir teknar til gagngerrar endurskoðunar. Nýtt deiliskipulag var samþykkt 2012 og fljótlega eftir það hófust framkvæmdir við sjálft Garðatorg. Næsta áfanga verkefnisins lauk með byggingu 32 íbúða við Kirkjulund en þar byggði verktakinn Kristjánssynir ehf. tvö fjölbýlishús með sameiginlegri bílageymslu árið 2013.
Byggingu Garðatorgs 4 og 2 lauk árið 2016 en byggingaraðili þar var ÞG Verk. Í Garðatorgi 4 eru 42 íbúðir á 4-5 hæðum en á jarðhæðinni eru 8 verslunar- og þjónusturými þar sem starfsemi hófst árið 2016. Þar er fjölbreytt starfsemi, m.a. Mathús Garðabæjar sem notið hefur mikilla vinsælda. Klasi sá um þróun og útleigu verslunar- og þjónusturýma. Garðatorg 2 hýsir síðan íbúðir. Undir báðum þessum húsum er einkabílakjallari fyrir íbúa.
Lokaáfangi verkefnisins var bygging Garðatorgs 6, með 12 íbúðum og 3 verslunar- og þjónusturýmum. Byggingu lauk árið 2017 og hófu verslanir starfsemi árið 2018. Þar með jókst enn fjölbreytni þjónustu í miðbæ Garðabæjar.
Samvinna Klasa og Garðabæjar hefur frá upphafi gengið vel og er gott dæmi um hvernig einkaaðilar og sveitarfélög geta unnið saman að jákvæðri uppbyggingu, íbúum til hagsbóta.
Gildandi deiliskipulag frá 2012:
- Garðbær deiliskipulag 2012.pdf
- Garðabær deiliskipulag 2012, skýringaruppdráttur.pdf
- Garðabær deiliskipulag 2012, þversnið og hæðarkótar.pdf
Videos, 2, waiting on Marcel